Íslendingaliðið Reading tapaði fyrir argentínska liðinu River Plate, 0:1, í fyrstu umferð Friðarbikarsins í knattspyrnu, Peace Cup, í Suður-Kóreu í dag. Matias Abelairas skoraði sigurmark River Plate eftir hálftíma leik.
Ívar Ingimarsson var fyrirliði Reading og lék í 60 mínútur en Brynjar Björn Gunnarsson spilaði allan leikinn á miðjunni hjá enska liðinu. Reading mætir frönsku meisturunum Lyon í öðrum leik sínum á mótinu á mánudaginn.