Tevez meinað að fara í læknisskoðun

Carlos Tevez ásamt dóttur sinni á flugvellinum í Manchester í …
Carlos Tevez ásamt dóttur sinni á flugvellinum í Manchester í kvöld. Reuters

West Ham hefur meinað Argentínumanninum Carlos Tevez að gangast undir læknisskoðun hjá Manchester United sem fyrirhuguð var á morgun. Tevez er mættur til Manchester og höfðu forráðamenn United ákveðið að kanna líkamlegt ástand hans en einhver bið kann nú að verða á því.

Forráðamenn West Ham segja að engin beiðni hafi komið til þeirra frá Manchester United um læknisskoðunina en til að hún geti farið fram þarf að liggja fyrir samþykki beggja félaga.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert