Robbie Fowler hefur neitað samningstilboði Sydney FC, en hann er enn án félags eftir að samningur hans við Liverpool rann út í júni síðastliðnum. Talið var að Fowler gengi í raðir Sydney en nú er talið líklegast að hann fari til Cardiff eða Leicester.
,,Við erum mjög vonsviknir, við gerðum allt sem við gátum til að reyna að sannfæra Robbie um að koma. Robbie var mjög ánægður með allt sem að hann sá í Sydney, en hann hefur ákveðið að fara annað," sagði George Perry framkvæmdastjóri Sydney FC.