Franska meistaraliðið Lyon bar í morgun sigurorð af Bolton, 1:0, í úrslitaleik Friðarbikarsins, Peace Cup, sem fram fór í S-Kóreu. Sænski landsliðsmaðurinn Kim Källström skoraði sigurmarkið sem kom fimm mínútum fyrir leikslok.
Bolton mætir skoska liðinu Hibernian í æfingaleik í Edinborg á miðvikudaginn og þá er reiknað með að Heiðar Helguson leiki sinn fyrsta leik fyrir félagið en Heiðar gekk fyrir helgina til liðs við Bolton og gerði þriggja ára samning við félagið.