Íslendingaliðið West Ham beið lægri hlut fyrir ítalska liðinu Lazio, 2:0, í æfingaleik sem háður var í Austurríki í kvöld. West Ham hafði ekki heppnina með sér í leiknum. Nýji liðsmaðurinn Craig Bellamy misnotaði vítaspyrnu í síðari hálfleik og Carlton Cole var tvívegis nálægt því að skora en aðeins glæsileg markvarsla markvarðar Lazio kom veg í veg fyrir að hann skoraði.