Chelsea marði LA Galaxy

John Terry og David Beckham skiptast á orðum í leik …
John Terry og David Beckham skiptast á orðum í leik Chelsea og LA Galaxy. Reuters

Chelsea sigraði bandaríska liðið Los Angeles Galaxy, 1:0, í æfingaleik sem háður var á Depot Center, heimavelli LA Galaxy í nótt. 27,000 áhorfendur sáu John Terry skora sigurmarkið á 49. mínútu. David Beckham lék sinn fyrsta leik með LA Galaxy en hann kom inná sem varamaður og lék 12 síðustu mínúturnar.

,,Mér fannst LA Galaxy leika af mikilli ástríðu og kannski vildu leikmenn liðsins sýna Beckham að þeir hafa á góðu liði að skipa. Þeir voru vel skipulagðir í leik sínum og veittu okkur harða mótspyrnu," sagði Jose Mourinho knattspyrnustjóri Chelsea eftir leikinn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert