Stórsigur hjá Man.Utd.

Wayne Rooney fagnar marki sínu ásamt Cristiano Ronaldo og Ryan …
Wayne Rooney fagnar marki sínu ásamt Cristiano Ronaldo og Ryan Giggs sem einnig voru á skotskónum. Reuters

Englandsmeistarar Manchester United rótburstuðu kínverska liðið Shenzhen Shangqingyin, 6:0, í þriðja æfingaleik liðsins í Asíuferðinni. Ryan Giggs, Wayne Rooney, Nani, John O'Shea, Christino Ronaldo og Chris Eagles gerðu mörkin fyrir United en staðan var, 3:0, í hálfleik.

Portúgalinn Nani lék sinn fyrsta leik fyrir Manchester liðið og hann hélt upp það með því að skora þriðja mark liðsins. Yfirburðir ensku meistaranna voru miklar og þeir hefðu hæglega getað skorað fleiri mörk íu leiknum.

Lið United: Edwin van der Sar (Tomas Kuszczak 45.), Wes Brown, Nemanja Vidic (Rio Ferdinand 45.), Johnny Evans, Patrice Evra (Mikael Silvestre 59.), Nani (Michael Carrick 59.), Darren Fletcher, Darren Gibson (John O'Shea 45.), Ronaldo (Chris Eagles 59.), Ryan Giggs (Alan Smith 45), Wayne Rooney (Dong 59).

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert