Newcastle lét mikið að sér kveða á leikmannamarkaðnum í dag. Fyrst samdi liðið við sóknarmanninn Alan Smith sem kemur frá Manchester United. Þá skrifaði brasilíski varnarmaðurinn Claudio Cacapa undir tveggja ára samning við félagið en hann kemur frá franska meistaraliðinu Lyon og loks hefur liðið náð samningi við Villareal um kaup á bakverðinum Jose Enrique.
Ekki hefur verið greint hve mikið Newcastle greiðir fyrir Enrique en talið er að kaupverðið sé um 4 milljónir punda, 510 milljónir króna, og að Spánverjinn geri fimm ára samning við þá röndóttu.