Arsenal hrósaði sigri á Amsterdam mótinu sem lauk í kvöld. Arsenal og Ajax áttust við í úrslitaleik þar sem Lundúnarliðið hafi betur, 1:0. Það var hollenski framherjinn Robin Van Persie sem skoraði sigurmarkið á 87. mínútu leiksins.
Áður hafði Arsenal lagt Lazio, 2:1, en ítalska liðið beið í dag lægri hlut fyrir Atletico Madrid, 3:1.