Wayne Rooney, leikmaður Manchester United og enska landsliðsins í knattspyrnu, er með sprungu í beini í fæti. Hann lenti í návígi við Michael Duberry undir lok fyrri hálfleiks gegn Reading í dag og Duberry lenti ofan á honum með þessum afleiðingum.
Þar með er ljóst að Rooney verður a.m.k. frá næstu vikurnar, missir af vináttulandsleik Englands og Þýskalands þann 22. ágúst og væntanlega af leikjum Englendinga í undankeppni EM í haust.