Íslendingafélagið West Ham gekk í dag frá kaupum á enska landsliðsmanninum Kieron Dyer frá Newcastle, fyrir 6 milljónir punda, tæpar 800 milljónir króna, að því er enskir fjölmiðlar telja. Kaupin koma á óvart því fyrir nokkru virtust þau vera endanlega úr sögunni eftir að Newcastle krafðist þess að fá 8 milljónir punda fyrir Dyer.
Dyer er 28 ára gamall miðjumaður og hefur leikið með Newcastle í átta ár en hefur átt í talsverðum vandræðum vegna meiðsla.