Óttast er að Kieron Dyer leikmaður Íslendingaliðsins West Ham hafi fótbrotnað þegar hann var tæklaður illa á upphafsmínútunum í leik West Ham og Bristol Rovers í deildabikarkeppninni í kvöld. Dyer, sem gekk í raðir West Ham frá Newcastle, var fluttur á sjúkrahús þar sem hann til skoðunar. West Ham er 2:0 yfir með mörkum frá Craig Bellamy.