Staðfest hefur verið úr herbúðum West Ham að það sé á höttunum eftir brasilíska sóknarmanninum Adriano sem er á mála hjá Ítalíumeisturum Inter en forráðamenn Inter greindu frá því í síðustu viku að það væri reiðubúið að lána Brasilíumanninn.
Manchester City og Parma hafa einnig verið með Adriano undir smásjánni en Eggert Magnússon og félagar hans í stjórn West Ham hafa blandað sér í baráttuna og vonast til að fá þennan 25 ára stóra og stæðilega framherja til liðs við sig fyrir föstudag en það er síðasti dagurinn sem hægt er að skipta um félag á þessu ári.