Arsenal er á góðri leið með að tryggja sér sæti í riðlakeppni Meistaradeildarinnar en þegar flautað hefur verið til leikhlés í viðureign Arsenal á tékkneska liðsins Spörtu Prag á Emirates Stadium er Arsenal 1:0 yfir og samanlagt, 3:0. Tomas Rosicky skoraði markið gegn löndum sínum á 8. mínútu eftir góðan undirbúning frá ungstirninu Theo Walcott.
Fyrr í kvöld tryggðu Besiktas frá Tyrklandi, Shaktar frá Úkraínu og Steaua Búkarest sér farseðilinn í riðlakeppnina en síðast nefnda liðið hafði betur gegn FH bönunum í BATE Borisov frá H-Rússlandi, 2:0, og samanlagt, 4:2.