West Ham er á höttunum eftir brasilíska sóknarmanninum Mancini leikmanni Roma að því er fréttavefur Sky greinir frá í kvöld. Hann er annar Brasilíumaðurinn sem West Ham sýnir áhuga á að fá í sínar raðir en forráðamenn félagsins upplýstu í gær að þeir vildu frá Adriano að láni frá Inter.
West Ham vill bæta við sig sóknarmönnum áður en félagaskiptafresturinn rennur út á miðnætti á föstudaginn en liðið varð fyrir miklu áfalli í gærkvöld þegar Kieron Dyer fótbrotnaði og verður frá keppni í hálft ár.