Mourinho: Áttum skilið í það minnsta eitt stig

Zat Knight fagnar marki sínu fyrir Aston Villa gegn Chelsea …
Zat Knight fagnar marki sínu fyrir Aston Villa gegn Chelsea í dag. Reuters

Jose Mourinho knattspyrnustjóri Chelsea sagði að sínir menn hefðu ekki átti skilið að tapa fyrir Aston Villa en strákarnir hans Martin O'Neil bundu enda á gott gengi Chelsea, sem fyrir leikinn í dag hafði ekki tapað í síðustu 18 leikjum sínum.

,,Þetta var góður leikjur tveggja góðra liða. Mér fannst við ekki verðskulda að tapa. Við réðum algjörlega ferðinni í fyrri hálfleik og brugðust vel við þegar Aston Villa skoraði fyrsta markið. Mér fannst við eiga skilið í það minnsta eitt stig í þessum leik," sagði Mourinho, sem aldrei hefur hrósað sigri á Villa Park, heimavelli Aston Villa.

,,Þetta er frábæra dagur. Chelsea er með frábært lið og við erum því afar ánægðir að hafa hrósað sigri gegn þeim. Markið sem Zat skoraði kom ró á leik okkar og ég verð að hrósa mínu liði fyrir hreint magnaða frammistöðu. Þessi sigur gefur liðinu mikið sjálftraust og ég lít björtum augum á framhaldið," sagði Martin O'Neill, stjóri Aston Villa.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert