Brynjar Björn Gunnarsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, skrifaði í dag undir nýjan samning við enska úrvalsdeildarliðið Reading. Brynjar hefur leikið tvö keppnistímabil með Reading en samningurinn rennur út sumarið 2009. Brynjar sagðist í samtali við mbl.is vera ánægður með samninginn sem væri í raun framlenging á eldri samningi hans. Honum og liðinu hefði gengið vel í fyrra og þetta væri eðlilegt skref fram á við. Samherji hans Ívar Ingimarsson er með samning við félagið til 2010.