Ráðist var á Sir Alex Ferguson knattspyrnustjóra Manchester United á Euston lestarstöðinni í London í gær. Talsmaður lögreglunnar greindi frá því að 40 ára karlmaður hefði verið ákærður fyrir að veitast að Ferguson sem meiddist á fæti en meiðslin reyndust minniháttar og gat Skotinn haldi ferð sinni áfram í höfuðborginni.