Meiðsli í herbúðum Arsenal

William Gallas fyrirliði Arsenal missir af leiknum gegn Tottenham.
William Gallas fyrirliði Arsenal missir af leiknum gegn Tottenham. Reuters

Arsenal verður án fyrirliðans William Gallas, Philippe Senderos, Emmanuel Eboue og Jens Lehmann í N-Lundúnarslagnum gegn Tottenham á laugardaginn. Gallas, Eboue og Lehmann eru allir meiddir en Senderos tekur út leikbann.

Líklegt er að Brasilíumaðurinn Gilberto Silva leiki í miðvarðarstöðunni með Kolo Toure en Gilberto hefur áður hlaupið í skarðið í þessari stöðu og skilað henni vel.

Arsenal hefur byrjað leiktíðina vel en liðið hefur 10 stig eftir fjóra leiki en það sama verður ekki sagt um lið Tottenham því það hefur aðeins innbyrt 4 stig í fimm leikjum og er komin mikil pressa á knattspyrnustjórann Martin Jol.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert