Tveir leikmanna Manchester United, Darren Fletcher og John O'Shea, meiddust í landsleikjum með Skotlandi og Írlandi í fyrradag og verða frá keppni næstu vikurnar, en Alex Ferguson, knattspyrnustjóri United, staðfesti það í dag.
Fletcher lenti í hörðu návígi við Patrick Vieira í leik Skota og Frakka og haltraði af velli og O'Shea verður frá í einhverjar vikur eftir að hafa meiðst á hné í leik Íra og Tékka.
„Þetta var mjög ljótt brot og því miður verður Darren frá keppni í sex vikur," sagði Ferguson.