Ljungberg með West Ham á ný

Freddy Ljungberg er tilbúinn í leikinn gegn Middlesbrough.
Freddy Ljungberg er tilbúinn í leikinn gegn Middlesbrough. Reuters

Útlit er fyrir að sænski knattspyrnumaðurinn Freddy Ljungberg verði í liði West Ham sem mætir Middlesbrough í ensku úrvalsdeildinni á morgun. Ljungberg, sem kom til félagsins frá West Ham í sumar, meiddist í fyrsta leiknum í deildinni, gegn Manchester City, og hefur ekki spilað síðan.

Ljungberg hefur æft af fullum krafti alla vikuna og sömu sögu er að segja af Scott Parker sem var keyptur frá Newcastle í sumar en hefur ekki leikið ennþá með West Ham vegna meiðsla. Þá hefur framherjinn Bobby Zamora náð sér af meiðslum þannig að það er hörð samkeppni um stöðurnar hjá Íslendingafélaginu þessa dagana.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert