Sir Alex Ferguson knattspyrnustjóri Englandsmeistara Manchester United segir að Wayne Rooney verði klár í slaginn á miðvikudaginn en þá mætir United portúgalska liðinu Sporting Lissabon á útivelli í 1. umferð riðlakeppni Meistaradeildarinnar.
Reiknað hafði verið með að Rooney yrði í leikmannahópi Manchester-liðsins gegn Everton í gær en Ferguson ákvað að taka ekki áhættu með að nota hann en Rooney er að jafna sig eftir risarbrot sem hann varð fyrir í leiknum gegn Reading í fyrstu umferð úrvalsdeildarinnar.