Hræðumst ekki Liverpool

Jamie Carragher verður í eldlínunni með Liverpool gegn Porto annað …
Jamie Carragher verður í eldlínunni með Liverpool gegn Porto annað kvöld. Reuters

Jesualdo Ferreira þjálfari Porto segir að sínir menn hræðist ekki Liverpool en Porto tekur á móti Liverpool í 1. umferð riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu annað kvöld. Bæði félögin hafa hampað Evrópubikarnum á síðustu fjórum árum, Porto 2004 og Liverpool 2005.

,,Liverpool hefur vaxið mikið á síðustu árum en ég sé enga ástæðu fyrir okkur að hræðast liðið. Liverpool er eitt af betri liðunum í Evrópu. Það hefur byrjað tímabilið vel en öll lið lenda í því að tapa leik á einhverjum tímapunkti. Það er þýðingarmikið fyrir okkur að byrja keppnina með sigri og að því stefnum við," segir Ferreira þjálfari Porto.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert