Sex breytingar á byrjunarliði Liverpool

Rafael Benítez hikar ekki við að breyta liði sínu á …
Rafael Benítez hikar ekki við að breyta liði sínu á milli leikja. Reuters

Rafael Benítez, knattspyrnustjóri Liverpool, hefur gert sex breytingar á byrjunarliði sínu fyrir leikinn gegn Porto í Meistaradeild Evrópu sem hefst í Portúgal klukkan 18.45.

Þeir Sami Hyypiä, Steven Gerrard, Javier Mascherano, Dirk Kuyt, Fernando Torres og Ryan Babel koma allir inní liðið en aðrir í byrjunarliðinu hjá Benítez eru þeir José Reina, Steve Finnan, Alvaro Arbeloa, Jamie Carragher og Jermaine Pennant.

Á bekknum eru m.a. Daniel Agger, Andriy Voronin, Yossi Benayoun og Peter Crouch.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert