Jose Mourinho fyrrum knattspyrnustjóri Chelsea vill komast aftur í þjálfarastarf sem allra fyrst en Mourinho náði í gærkvöld samningi við Lundúnarliðið um starfslok sín hjá félaginu.
,,Ég bíð bara eftir símtölum. Ég vil njóta lífisins en ég vil starfa áfram," segir Mourinho í viðtali við The Times.
Mourinho hefur þegar verið orðaður við nokkrar lið þar á meðal portúgalska landsliðið en fregnir frá Portúgal herma að þær vangaveltur að Mourinho komi til með að starfa við Luiz Felipe Scolari, sem er undir miklum þrýstingi, eigi ekki við rök að styðjast.