Newcastle ákveður hvort Owen spili með Englendingum

Michael Owen í leik með Englendingum.
Michael Owen í leik með Englendingum. Reuters

Sam Allardyce knattspyrnustjóri Newcastle segir að læknateymi félagsins muni ákveða hvort Michael Owen geti spilað með enska landsliðinu frekar en læknar enska landsliðsins.

Owen gekkst undir aðgerð vegna kviðslits á dögunum en er byrjaður að æfa og gæti hugsanlega komið við sögu í leiknum gegn Everton á sunnudaginn.

Englendingar mæta Eistum og Rússum í undankeppni EM síðar í mánuðinum og er fastlega reiknað með að Steve McClaren landsliðsþjálfari Englendinga velji Owen í hópinn en Allardyce tók það skýrt fram í dag að Newcastle ætti síðasta orðið um það hvort Owen verði með í þeim leikjum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert