Knattspyrnudómarinn Mark Clattenburg hefur verið settur í frí og mun ekki dæma í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu um næstu helgi.
Clattenburg hefur verið harðlega gagnrýndur fyrir frammistöðu sína á laugardaginn þegar hann dæmdi leik Everton og Liverpool en þrjú vafasöm atriði féllu þar Liverpool í hag.