Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, teflir væntanlega fram óbreyttu liði þegar hann sækir Liverpool heim í stórleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni á sunnudaginn.
Þeir Robin van Persie og Philippe Senderos eru áfram frá vegna meiðsla. Van Persie verður væntanlega frá í fjórar vikur vegna meiðsla í baki en Senderos gæti verið tilbúinn um aðra helgi.
Manuel Almunia heldur örugglega áfram í marki Arsenal, Jens Lehmann til lítillar ánægju.
Hópurinn hjá Arsenal: Almunia, Lehmann, Sagna, Toure, Gallas, Clichy, Hleb, Fabregas, Flamini, Diaby, Adebayor, Eduardo, Eboue, Walcott, Gilberto, Rosicky, Bendtner, Denilson.