Torres byrjaður að æfa á ný

Fernando Torres er byrjaður að æfa á ný.
Fernando Torres er byrjaður að æfa á ný. Reuters

Fernando Torres, spænski knattspyrnumaðurinn, hóf æfingar á ný með Liverpool, fyrr en búist var við, en hann hefur misst af síðustu leikjum liðsins vegna meiðsla. Þó er talið að hann muni ekki koma við sögu þegar lið hans mætir Besiktas í Meistaradeild Evrópu annað kvöld.

Liverpool saknaði hans mjög þegar liðið gerði markalaust jafntefli við Blackburn á laugardaginn en Torres tognaði í kviðvöðva í leik liðsins við Arsenal um fyrri helgi. Reiknað var með að hann yrði minnst þrjár vikur frá keppni vegna meiðslanna.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert