Benítez: Vann síðast 8:0 sem skólastrákur

Rafael Benítez knattspyrnustjóri Liverpool.
Rafael Benítez knattspyrnustjóri Liverpool. Reuters

Rafael Benítez knattspyrnustjóri Liverpool sá lærisveina sína fara á kostum gegn Besiktas í Meistaradeildinni í kvöld. 8:0 urðu úrslitin á Anfield og með sigrinum heldur Liverpool enn í von um að komast í 16-liða úrslitin.

,,Ég held að síðast þegar ég vann 8:0 hafi verið þegar ég spilaði fótbolta sem skólastrákur," sagði Benítez eftir leikinn í kvöld. Við unnum þennan glæsilega sigur á liðsheildinni. Allir mínir leikmenn spiluðu vel og við vissum það fyrir leikinn að til að komast áfram þá þyrftum við að vinna þá leiki sem við eigum eftir."

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert