Wayne Rooney framherjinn snjalli hjá Manchester United vandaði ekki liði Dynamo Kiev kveðjurnar eftir leik liðanna í Meistaradeildinni á Old Trafford í kvöld þar sem Englandsmeistararnir unnu öruggan 4:0 sigur og tryggðu sér farseðilinn í 16-liða úrslitin.
,,Þeir sýndu engan vilja til að spila fótbolta en við stóðum okkur vel. Við náðum á köflum að spila virkilega góðan fótbolta og það var ánægjulegt að yngri leikmenn okkar fengu tækifæri sem er mikil reynsla fyrir þá. Það er mikið sjálfstraust í liðinu og vonandi höldum við áfram á þessari braut," sagði Rooney eftir leikinn en hann skoraði þriðja mark sinna manna.