Rooney frá keppni næstu fjórar vikurnar

Wayne Rooney meiddist á æfingu í dag.
Wayne Rooney meiddist á æfingu í dag. Reuters

Wayne Rooney framherji Manchester United og enska landsliðsins meiddist á ökkla á æfingu Manchester United í morgun og er verður hann frá keppni næstu fjórar vikurnar. Það þýðir að hann verður ekki með Englendingum þegar þeir etja kappi við Króata í undankeppni Evrópumótsins á Wembley þann 21. þessa mánaðar en Englendingar verða að vinna þann leik til að eygja möguleika á að komast í úrslitakeppnina.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert