Aston Villa hafði betur, 2:1, í borgarslag Villa og Birmingham sem áttust við á St.Andrews, heimavelli Birmingham í dag. Gabriel Agbonlahor tryggði Aston Villa öll stigin þegar hann skoraði með skalla fimm mínútum fyrir leikslok.
Villa komst yfir á 9. mínútu með sjálfsmarki frá Liam Ridgewell en Finninn Mikael Forsell jafnaði metin fyrir heimamenn með glæsilegri kollspyrnu á 62. mínútu.
Klukkan 14 hófst leikur Chelsea og Everton á Stamford Bridge og er staðan, 0:0, í hálfleik. Chelsea hefur þurft að gera eina breytingu á liði sínu. Varnarmaðurinn Ricardo Carlahlo fór meiddur af velli og stöðu hans tók Tal Ben-Haim.