Norski landsliðsmaðurinn John Arne Riise leikmaður Liverpool vísar fréttum um að hann sé á leið til Aston Villa í janúar algjörlega á bug. Hann segist vonast til að framlengja samning sinn við Liverpool en samningur hans við félagið rennur út eftir 18 mánuði.
,,Það komu fréttir fyrir nokkru síðan að ég færi til Aston Villa í janúar. Ég var í Noregi með landsliðinu þegar þessi frétt kom. Ég var spurður mikið út í þetta þar sem Liverpool á marga fylgismenn í Noregi en sannleikurinn er sá að þetta er kjaftæði. Ég á 18 mánuði eftir af samningi mínum og ég hef ekki uppi nein áform að fara frá liðinu. Þvert á móti óska ég þess að ljúka ferli mínum hjá Liverpool," segir Riise á vef félagins.