Birmingham hafnaði ósk Wigan um viðræður við Bruce

Steve Bruce fær ekki að tala við Wigan.
Steve Bruce fær ekki að tala við Wigan. Reuters

Enska úrvalsdeildarfélagið Birmingham City hafnaði í dag beiðni Wigan Athletic um að fá að ræða við knattspyrnustjórann Steve Bruce. Eins og áður hefur komið fram vild Wigan fá Bruce í staðinn fyrir Chris Hutchings sem var sagt upp störfum á dögunum.

Bruce, sem er 46 ára, hefur stýrt Birmingham undanfarin sex ár en framtíð hans hefur þótt óviss undanfarið þar sem væntanlegur eigandi, Carson Yeung, hefur gefið í skyn að hann myndi skipta um knattspyrnustjóra ef hann kæmist að völdum í félaginu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert