Wright-Phillips verður með gegn Austurríki

Shaun Wright-Phillips og Frank Lampard verða væntanlega báðir með Englandi …
Shaun Wright-Phillips og Frank Lampard verða væntanlega báðir með Englandi gegn Austurríki á morgun. Reuters

Shaun Wright-Phillips, kantmaðurinn frá Chelsea, hefur hrist af sér meiðsli og getur leikið með enska landsliðinu annað kvöld þegar það mætir Austurríki í vináttulandsleik í Vínarborg.

Wright-Phillips gat ekki æft í gær vegna ökklameiðsla en var með á fullu í dag. Owen Hargreaves verður hinsvegar örugglega ekki með og óvíst er að hann geti spilað gegn Króötum næsta miðvikudag.

Talið er líklegast að Sol Campbell og Micah Richards verði miðverðir hjá enska liðinu annað kvöld í fjarveru þeirra Rio Ferdinands og Johns Terrys en Ferdinand er í banni gegn Króötum og spilar því ekki annað kvöld, og Terry er meiddur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka