Ronaldo og Vidic með

Cristiano Ronaldo verður með United gegn sínum gömlu félögum í …
Cristiano Ronaldo verður með United gegn sínum gömlu félögum í Sporting annað kvöld. Reuters

Cristiano Ronaldo og Nemanja Vidic koma báðir inn í lið Englandsmeistara Manchester United þegar þeir taka á móti Sporting Lissabon í Meistadeild Evrópu í knattspyrnu annað kvöld.

Ronaldo og Vidic var sárt saknað í liði United á laugardaginn þegar Bolton stöðvaði sigurgöngu meistaranna með því að leggja þá á heimavelli sínum, 1:0. Ronaldo var hvíldur í leiknum en Vidic lék ekki vegna minniháttar meiðsla í baki.

Manchester United hefur þegar tryggt sér sæti í 16-liða úrslitum Meistadeildarinnar en þarf eitt stig til viðbótar til að tryggja sér fyrsta sætið í riðlinum

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert