Jóhannes Karl rekinn af velli

Jóhannes Karl fékk rauða spjaldið.
Jóhannes Karl fékk rauða spjaldið. Ómar Óskarsson

Jóhannes Karl Guðjónsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, var rekinn af velli þegar lið hans, Burnley, tapaði 2:3 fyrir Preston í ensku 1. deildinni í dag.

Jóhannes, sem kom inná sem varamaður á 56. mínútu, fékk spjaldið á síðustu mínútu leiksins fyrir að brjóta á Neil Mellor. Hann var annar leikmanna Burnley til að hljóta þau örlög en Chris McCann fékk líka rauða spjaldið, á 64. mínútu.

Jóhannes Karl á nú þriggja leikja bann yfir höfði sér þar sem hann fékk beint rautt spjald.

Owen Coyle, knattspyrnustjóri Burnley, var afar óhress með úrskurði dómarans og sagði að lið sitt hefði átt að fá vítaspyrnu og leikmaður Preston rautt spjald strax á 2. mínútu. „Mér var sagt að Stevie Wonder hefði verið í stúkunni og hann hefði heimtað vítaspyrnu," sagði Coyle eftir leikinn en tónlistarmaðurinn kunni er blindur eins og flestir vita.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert