Arsene Wenger knattspyrnustjóri Arsenal var stoltur af ungu strákunum sínum í kvöld þegar þeir báru sigurorð af Blackburn á útivelli í 8-liða úrslitum ensku deildabikarkeppninnar. Wenger ætlar að halda áfram að tefla ungu mönnunum í keppninni en Arsenal-liðið komst í úrslit á síðustu leiktíð en tapaði fyrir Chelsea.
,,Við viljum ljúka verkinu sem við hófum í fyrra. Við höfum gott tækifæri núna þar sem við erum komnir í undanúrslit. Þessi leikur var góð prófraun fyrir strákana og þeir stóðust hana. Þegar við náðum ekki að spila okkar fótbolta lengur í leiknum þá urðum við að gera eitthvað annað. Okkur tókst að knýja fram sigur manni færri og leikmenn mínir eiga mikið lof skilið," sagði Wenger.