Bjarni Þór Viðarsson er í 18 manna leikmannahópi Everton sem hélt til Hollands í dag en Everton mætir AZ Alkmaar, liði Grétars Rafns Steinssonar, í UEFA-keppninni annað kvöld.
Þar sem Everton hefur unnið riðilinn og er öruggt í 32-liða úrslitin ákvað David Moyes, knattspyrnustjóri Everton, að hvíla nokkra af lykilmönnum sínum og láta þá safna kröftum fyrir leikinn gegn Englandsmeisturum Manchester United sem fram fer á sunnudaginn. Meðal þeirra leikmanna sem ekki fóru til Hollands voru: Tim Howard, Phil Neville, Joseph Yobo, Mikel Arteta og Tim Cahill.