Barton eyðir áramótunum í fangelsi

Joey Barton leikmaður Newcastle.
Joey Barton leikmaður Newcastle. Reuters

Joey Barton miðvallarleikmaður Newcastle, sem handtekinn var í gær í tengslum við líkamsárás í Liverpool-borg, fær ekki að losna úr fangelsi en dómari í Liverpool neitaði honum í morgun lausn úr steininum gegn tryggingu. Hann var úrskurðaður í gæsluvarðhald til 3. janúar.

Barton var einn af þremur sem lögreglan í Liverpool handtók í gærmorgun í morgun á Kirkjustræti, Church Street, í miðborg Liverpool en hin eru 19 ára karlmaður og 27 ára kvenmaður.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert