Newcastle á eftir Pandev

Goran Pandev hefur staðið sig vel með Lazio í vetur.
Goran Pandev hefur staðið sig vel með Lazio í vetur. Reuters

Goran Pandev, sóknarmaður Lazio á Ítalíu og makedónska landsliðsins í knattspyrnu, segir að enska úrvalsdeildarfélagið Newcastle hafi gert tilboð í sig.

Pandev sagði þetta við blað í heimalandi sínu, Makedonski Sport. „Félag Keegans vill hefja viðræður sem fyrst en ég veit ekkert hvaða upphæðir eru í spilinu. Það hafa ýmis boð komið að undanförnu en þetta er ekki í mínum höndum. Fyrir nokkrum dögum gerðum við samkomulag um að ég yrði með Lazio framá sumar en það getur allt gerst," sagði Pandev við blaðið.

Pandev er 24 ára gamall og hefur skorað 8 mörk í 16 leikjum með Lazio í ítölsku A-deildinni í vetur. Hann hefur verið orðaður við lið eins og Liverpool og Valencia á undanförnum vikum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert