Juande Ramos, knattspyrnustjóri Tottenham, setti leikmenn sína í áfengisbann eftir sigurinn á Arsenal í deildabikarnum á dögunum.
Honum hugnaðist ekki að sjá myndir af þeim í fjölmiðlum, súpandi á áfengum drykkjum, eftir leikinn og krefst þess að þeir leggi slíkt til hliðar og einbeiti sér að því að vera í sem bestu líkamlegu ástandi.
Bindindið dugði þó ekki liði Tottenham til sigurs gegn Manchester United í bikarkeppninni í dag en leikmenn liðsins voru allavega frískir og sókndjarfir, hverju sem það var að þakka.