Sir Alex Ferguson knattspyrnustjóri Manchester United styður þá ákvörðun Fabio Capello að velja David Beckham ekki í enska landsliðshópinn fyrir vináttuleik Englendinga gegn Svisslendingum sem fram fer í næstu viku.
„Það kom mér ekki á óvart að hann skildi ekki vera valinn. Capello vill eðlilega velja leikmenn í hópinn sem eru í leikformi en Beckham er það ekki um þessar mundir. Menn verða að skilja stöðu Capello. Þetta er mikilvægur leikur, enda hans fyrsti leikur sem hann vill vinna,“ segir Ferguson.