Englandsmeistarar Manchester United þurfa að greiða 25.000 pund, 3,2 milljónir króna, í sekt þar sem sjö leikmenn liðsins fengu að líta gula spjaldið í jafnteflisleik Manchester United gegn Tottenham á laugardaginn.
Edwin van der Sar, Cristiano Ronaldo, Wes Brown, Nani, Nemanja Vidic, Wayne Rooney og Carlos Tevez voru allir áminntir í leiknum en þegar lið fær meira en sex gul spjöld í leik er það sektað af aganefnd enska knattspyrnusambandsins.
Verði sex eða fleiri leikmenn Manchester United áminntir aftur í einum og sama leiknum verður félagið að greiða 50.000 pund í sekt en þessar upphæðir eru lítilræði fyrir félagið enda Manchester United eitt ríkasta félag í veröldinni.