Vonast eftir Torres um helgina

Fernando Torres var saknað í leik Liverpool gegn Chelsea í …
Fernando Torres var saknað í leik Liverpool gegn Chelsea í gær. Reuters

Rafael Benítez knattspyrnustjóri Liverpool kveðst vongóður um að framherjinn Fernando Torres geti leikið með liðinu gegn Barnsley í bikarkeppninni á laugardaginn og gegn Inter Mílanó í Meistaradeild Evrópu á þriðjudaginn í næstu viku.

Torres gat ekki leikið með Liverpool gegn Chelsea í gær vegna tognunar í læri sem hann hlaut í landsleik með Spánverjum gegn Frökkum í síðustu viku.

„Kannski nær hann leiknum við Barnsley, það er tími til stefnu til þess. Sjúkraþjálfarar okkar vinna að því hörðum höndum að koma honum í lag og það gæti gengið upp," sagði Benítez við BBC.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert