Alex Ferguson: Stórkostleg frammistaða

Anderson og Justin Hoyte í baráttu um boltann á Old …
Anderson og Justin Hoyte í baráttu um boltann á Old Trafford í kvöld. Reuters

Sir Alex Ferguson knattspyrnustjóri Manchester United var í skýjunum eftir sigur sinna manna gegn aðalkeppinautunum í Arsenal í viðureign liðanna í bikarnum á Old Trafford í kvöld.

„Þetta var stórkostleg frammistaða hjá liðinu. Leikmenn mínir voru frábærir. Þeir sýndu frábær tilþrif í alla staði og eftir mikil vonbrigði eftir leikinn við Manchester City svöruðu þeir fyrir sig á réttan hátt. Ég fann það í vikunni að þeir ætluðu að selja sig dýrt og þeir gerðu það svo sannarlega,“ sagði Ferguson við Manchester United sjónvarpsstöðina eftir 4:0 sigur liðsins á Arsenal.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert