Nú rétt í þessu var dregið til 8-liða úrslitanna í ensku bikarkeppninni í knattspyrnu. Bikarmeistarar Chelsea sækja Barnsley heim og Hermann Hreiðarsson og félagar hans í Portsmouth leika gegn Englandsmeisturum Manchester United á Old Trafford.
Drátturinn varð þessi:
Sheffield United/Middlesbrough v Cardiff City
Manchester United v Portsmouth
Bristol Rovers v WBA
Barnsley v Chelsea
Leikirnir fara fram helgins 8. og 9. mars