Gary Neville fyrirliði Manchester United lék í 60 mínútur með varaliði félagsins í kvöld þegar það tapaði fyrir Liverpool, 2:0, í varaliðskeppninni. Xabi Alonso og Harry Kewell gerðu mörkin fyrir Liverpool.
Neville hefur ekkert leikið með aðalliði United vegna þrálátra meiðsla síðan í mars á síðasta ári en Sir Alex Ferguson, stjóri United, er bjartsýnn á að stutt sé í endurkomu fyrirliðans.
Danski miðvörðurinn Daniel Agger lék fyrri hálfleikinn með Liverpool en hann er að ná sér af meiðslum og lék í kvöld sinn fyrsta leik síðan um miðjan september.