Torres og Moyes bestir í febrúar

David Moyes með verðlaunagripinn sem fylgdi útnefningunni.
David Moyes með verðlaunagripinn sem fylgdi útnefningunni. AP

Fernando Torres hjá Liverpool og David Moyes hjá Everton voru í dag verðlaunaðir sem besti leikmaður febrúarmánaðar og besti knattspyrnustjóri febrúarmánaðar í ensku úrvalsdeildinni.

Everton tapaði ekki leik í deildinni í febrúar undir stjórn Moyes og liðið er í góðri stöðu í baráttunni um fjórða sæti úrvalsdeildarinnar og keppnisrétt í forkeppni Meistaradeildar Evrópu.

Torres skoraði fjögur mörk í tveimur deildaleikjum í febrúar, þar af þrennu í sigri  Liverpool á Middlesbrough, og hann er kominn í baráttuna um markakóngstitilinn í úrvalsdeildinni þar sem hann hefur gert 18 mörk á tímabilinu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert